Samfélags- og mannréttindaráð

111. fundur 15. ágúst 2012 kl. 17:00 - 18:40 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Regína Helgadóttir
  • Friðbjörg J Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • María Hólmfríður Marinósdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2013 - samfélags- og mannréttindamál

Málsnúmer 2012060197Vakta málsnúmer

Farið yfir tillögur bæjarráðs að tekju- og fjárhagsrömmum fyrir þá málaflokka sem heyra undir samfélags- og mannréttindaráð.

Samfélags- og mannréttindaráð felur framkvæmdastjóra að koma á framfæri þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum.

2.Móttöku- og kynningardagur fyrir nýja íbúa

Málsnúmer 2012060209Vakta málsnúmer

Áframhaldandi undirbúningur móttöku- og kynningardags fyrir nýja íbúa bæjarins í tilefni 150 ára afmælis Akureyrarkaupstaðar.

3.Jafnréttisstofa - beiðni um afhendingu á skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála

Málsnúmer 2012070136Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 27. júlí 2012 frá Ingibjörgu Elíasdóttur f.h. Jafnréttisstofu þar sem óskað er eftir skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála. Skilafrestur er til 31. október 2012.

4.Landsfundur jafnréttisnefnda 2012

Málsnúmer 2012080027Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um að landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga verði haldinn á Akranesi 14. september nk.

5.Súlur, björgunarsveitin á Akureyri - samningur

Málsnúmer 2011030171Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur við Súlur, björgunarsveitina á Akureyri um styrk til eins árs.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir samninginn.

6.Forvarnamál - 2011-2012

Málsnúmer 2012040062Vakta málsnúmer

Til fundarins mætti Jóhannes Óli Ragnarsson forsvarsmaður Sólskinsbarna - samtaka gegn einelti á Akureyri og sagði frá fyrirhuguðu starfi samtakanna.

Samfélags- og mannréttindaráð þakkar Jóhannesi fyrir kynninguna.

Fundi slitið - kl. 18:40.