Samfélags- og mannréttindaráð

104. fundur 21. mars 2012 kl. 17:00 - 19:05 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Guðlaug Kristinsdóttir
  • Elías Gunnar Þorbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Friðbjörg J Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Félagsmiðstöðvar - stefnumótun

Málsnúmer 2011020029Vakta málsnúmer

Alfa Aradóttir forstöðumaður æskulýðsmála og Gunnlaugur V. Guðmundsson umsjónarmaður félagsmiðstöðva mættu á fundinn til umræðu um framtíðarsýn fyrir félagsmiðstöðvar.
Anna Hildur Guðmundsdóttir mætti til fundar kl. 17:15.

2.Klámvæðing samfélagsins

Málsnúmer 2012030165Vakta málsnúmer

Umræða um klám og afleiðingar þess, sjálfsmynd ungmenna og forvarnir.
Alfa Aradóttir forstöðumaður æskulýðsmála og Gréta Kristjánsdóttir forvarnafulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.

3.Styrkveitingar samfélags- og mannréttindaráðs

Málsnúmer 2010110089Vakta málsnúmer

Áframhaldandi umræða og vinna við gerð reglna um styrkveitingar og samninga vegna æskulýðs- og tómstundafélaga.

Samfélags- og mannréttindaráð felur framkvæmdastjóra að hafa samband við þau æskulýðs- og tómstundafélög sem komið hafa á fundi ráðsins undanfarið og óska eftir samstarfi um að máta félögin við þau drög að reglum sem liggja fyrir.

4.Fjölskyldustefna Akureyrarbæjar - endurskoðun

Málsnúmer 2008080068Vakta málsnúmer

Fulltrúar ráðsins í vinnuhópi um mat á Fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar fóru yfir þau verkefni sem eru á ábyrgð samfélags- og mannréttindaráðs. Einnig var rætt almennt um stöðu stefnunnar.
Tryggvi Þór Gunnarsson vék af fundi kl. 18:40.
Elías Gunnar Þorbjörnsson vék af fundi kl. 18:50.

5.Íþrótta- og tómstundaskóli

Málsnúmer 2012020136Vakta málsnúmer

Skólanefnd hefur á fundi sínum 20. febrúar sl. óskað eftir að samfélags- og mannréttindaráð og íþróttaráð sameinist um að tilnefna einn fulltrúa í starfshóp um skipulag íþrótta- og tómstundaskóla (Heilsdagsskóla) fyrir börn á aldrinum 5-9 ára.

Samfélags- og mannréttindaráð og íþróttaráð tilnefna Þorvald Sigurðsson sem fulltrúa sinn í starfshópnum og óska jafnframt eftir að forstöðumaður íþróttamála vinni með hópnum.

6.Kvennasmiðja - skýrsla 2011

Málsnúmer 2008080086Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Sigrúnar Sigurðardóttur verkefnastjóra hjá Starfsendurhæfingu Norðurlands, dags. 15. febrúar 2012 um rekstur Kvennasmiðjunnar á haustönn 2011.

Fundi slitið - kl. 19:05.