Samfélags- og mannréttindaráð

91. fundur 07. september 2011 kl. 16:45 - 18:53 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Heimir Haraldsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Regína Helgadóttir
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Innflytjendaráð

Málsnúmer 2011090008Vakta málsnúmer

Í fjölmenningarstefnu Akureyrarbæjar er kveðið á um stofnun innflytjendaráðs.
Zane Brikovska verkefnastjóri fjölmenningarmála kynnti hugmyndir um stofnun slíks ráðs.

2.Virkið - virknisetur fyrir ungt fólk án atvinnu

Málsnúmer 2011090009Vakta málsnúmer

Virkið er virknisetur fyrir ungt fólk án atvinnu. Að starfrækslu Virkisins koma Akureyrarbær, Vinnumálastofnun og Rauði krossinn.
Gestir fundarins undir þessum lið voru Alfa Aradóttir forstöðumaður æskulýðsmála, Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri Virkisins og starfsmaður Rauða krossins, Kristján Bergmann Tómasson umsjónarmaður Ungmenna-Húss og Orri Stefánsson verkefnastjóri.

3.Aðgerðaáætlun forvarnastefnu 2011-2013

Málsnúmer 2011090007Vakta málsnúmer

Aðgerðaáætlun forvarnastefnu fyrir 2011-2013 lögð fram til samþykktar.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

4.Forvarnastefna - endurskoðun 2010-2011

Málsnúmer 2010110033Vakta málsnúmer

Áframhaldandi umræður um prentun og dreifingu nýrrar forvarnastefnu og aðgerðaáætlunar. Lagðar fram tillögur að útgáfu sem gert er ráð fyrir að verði dreift í lok mánaðarins.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir framlagðar tillögur.

5.Áfengis- og vímuvarnir

Málsnúmer 2011040090Vakta málsnúmer

Í maí sl. kom samfélags- og mannréttindaráð að máþingingu Bara gras? þar sem fjallað var um skaðsemi kannabisneyslu. Ræddar voru hugmyndir að eftirfylgni.

6.Fjárhagsáætlun 2012 - samfélags- og mannréttindadeild

Málsnúmer 2011090010Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um fjárhagsáætlanaferli og tímaáætlun vegna áætlanagerðar næsta árs.

Fundi slitið - kl. 18:53.