Samfélags- og mannréttindaráð

90. fundur 17. ágúst 2011 kl. 16:45 - 18:45 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Brynjar Davíðsson
  • Heimir Haraldsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Regína Helgadóttir
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Katrín Björg Ríkarðsdóttir katrinb@akureyri.is
Dagskrá

1.Forvarnastefna

Málsnúmer 2010110033Vakta málsnúmer

Rætt um útgáfu og dreifingu á nýrri forvarnastefnu og aðgerðaáætlun.
Anna Hildur Guðmundsdóttir mætti til fundar kl. 17:00.

2.Fjölskyldustefna Akureyrarbæjar - endurskoðun

Málsnúmer 2008080068Vakta málsnúmer

Bæjarráð hefur á fundi sínum 23. júní sl. falið samfélags- og mannréttindaráði að meta hvort markmiðum Fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar er nú þegar mætt í öðrum stefnum bæjarins eða hvort ástæða sé til að endurskoða stefnuna og leggja tillögu fyrir bæjarstjórn.
Unnið að undirbúningi verkefnisins.

3.Ungt fólk 2010 - Framhaldsskólanemar

Málsnúmer 2007010223Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrslan Ungt fólk 2010 - Framhaldsskólanemar: Menntun, menning, tómstundir, íþróttaiðkun og framtíðarsýn ungmenna í framhaldsskólum á Íslandi. Skýrslan var unnin af Rannsóknum og greiningu ehf fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Skýrsluna má nálgast á vefslóðinni https://www.rannsoknir.is/wp-content/uploads/2020/04/Ungt-folk-2010-Framhaldsskolanemar.pdf

4.Landsfundur jafnréttisnefnda 2011

Málsnúmer 2011070042Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um að landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga verði haldinn í Kópavogi dagana 9. og 10. september nk.

5.Almannaheillanefnd

Málsnúmer 2008100088Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð almannaheillanefndar frá 20. maí 2011.

Fundi slitið - kl. 18:45.