Samfélags- og mannréttindaráð

89. fundur 15. júní 2011 kl. 16:45 - 18:45 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Guðlaug Kristinsdóttir
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Katrín Björg Ríkarðsdóttir katrinb@akureyri.is
Dagskrá

1.Forvarnastefna

Málsnúmer 2010110033Vakta málsnúmer

Ný forvarnastefna hefur nú verið samþykkt. Rætt var um útgáfu og dreifingu á stefnunni.

2.100 ár liðin frá kosningu fyrstu konu í bæjarstjórn Akureyrar

Málsnúmer 2011010047Vakta málsnúmer

Til að minnast þess að 100 ár eru liðin frá því Kristín Eggertsdóttir tók fyrst kvenna sæti í bæjarstjórn mun samfélags- og mannréttindaráð standa fyrir útplöntun í Vilhelmínulundi við Hamra á kvenréttindadaginn 19. júní nk. kl. 13:00 og ásamt fleirum standa fyrir kvennasögugöngu kl. 10:30 þennan sama dag.

3.Félagsmiðstöðvar og Ungmenna-Hús

Málsnúmer 2010010090Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar tölur um þátttöku í starfi Ungmenna-Hússins og félagsmiðstöðvanna veturinn 2010-2011.

4.Punkturinn og tómstundanámskeið barna

Málsnúmer 2010010092Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar tölur um þátttöku í starfi handverksmiðstöðvarinnar Punktsins og þátttöku í tómstundanámskeiðum fyrir börn veturinn 2010-2011.

5.Sumarstarf í Rósenborg fyrir ungt fólk

Málsnúmer 2010010090Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir þau verkefni sem ungt fólk vinnur að í Rósenborg í sumar.
Anna Hildur Guðmundsdóttir mætti til fundar kl. 17:20.

6.Jafnréttisáætlanir stofnana

Málsnúmer 2008090024Vakta málsnúmer

Í jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar er kveðið á um að allir vinnustaðir þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn skuli gera jafnréttisáætlanir í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Jafnréttisáætlanir Brekkuskóla, Giljaskóla, Glerárskóla og Oddeyrarskóla voru lagðar fram til kynningar.

Samfélags- og mannréttindaráð fagnar þessum fjórum áætlunum og hvetur þær stofnanir sem enn hafa ekki lokið vinnu við gerð jafnréttisáætlana til að gera það sem fyrst.

7.Samfélags- og mannréttindaráð - fundaáætlun 2011

Málsnúmer 2011010036Vakta málsnúmer

Lögð fram fundaáætlun til áramóta.

Fundi slitið - kl. 18:45.