Samfélags- og mannréttindaráð

83. fundur 16. mars 2011 kl. 16:45 - 18:45 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir
  • Jóhann Gunnar Sigmarsson
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Kynjuð fjárhagsáætlanagerð

Málsnúmer 2011030090Vakta málsnúmer

Umræður um kynjaða fjárhagsáætlanagerð og möguleika þess að Akureyrarbær taki upp slíkt vinnulag. Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri kynnti hugmyndafræðina.

Samfélags- og mannréttindaráð þakkar Jóni Braga fyrir kynninguna og hvetur bæjarstjórn til að hafa þetta í huga við áætlanagerð í framtíðinni.

Guðlaug Kristinsdóttir B-lista mætti til fundar kl. 17:03.

2.Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar - endurskoðun

Málsnúmer 2008090024Vakta málsnúmer

Samfélags- og mannréttindaráð hefur hafið vinnu við endurskoðun á jafnréttisstefnu bæjarins. Á fundinum var rætt um hvaða áhersluatriði úr Jafnréttissáttmála Evrópu eigi að velja inn í stefnuna.
Sáttmálann má nálgast á http://www.samband.is/media/althjodamal/Jafnrettissatmali.pdf

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti að velja afnám staðalímynda og samþættingu kynjasjónarmiða sem áhersluatriði úr Jafnréttissáttmála Evrópu og óskar eftir staðfestingu bæjarstjórnar.

3.Jafnréttisáætlanir stofnana

Málsnúmer 2008090024Vakta málsnúmer

Í jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar er kveðið á um að allir vinnustaðir bæjarins þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn skuli gera jafnréttisáætlanir í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Lagðar voru fram til kynningar áætlanir Heilsugæslustöðvar og Öldrunarheimila.

Samfélags- og mannréttindaráð fagnar þessum tveimur jafnréttisáætlunum og hvetur þær stofnanir sem ekki hafa lokið vinnu við gerð jafnréttisáætlana að gera það sem fyrst.

4.Reglur um styrkveitingar samfélags- og mannréttindaráðs

Málsnúmer 2008030111Vakta málsnúmer

Farið yfir núgildandi reglur Akureyrarbæjar um styrkveitingar sem og reglur samfélags- og mannréttindaráðs um veitingu styrkja.

5.Starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs 2011

Málsnúmer 2010090136Vakta málsnúmer

Áframhaldandi vinna við starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs fyrir árið 2011.

Fundi slitið - kl. 18:45.