Samfélags- og mannréttindaráð

69. fundur 05. júlí 2010 kl. 13:00 - 15:00 Trója austur 2. hæð Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Heimir Haraldsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Guðlaug Kristinsdóttir
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá
Bæjarstjórn hefur á fundi sínum 15. júní 2010 kosið aðal- og varamenn í samfélags- og mannréttindaráð til fjögurra ára.

Aðalmenn:
Hlín Bolladóttir
Tryggvi Gunnarsson
Heimir Haraldsson
Anna Hildur Guðmundsdóttir
Guðlaug Kristinsdóttir

Varamenn:
Brynjar Davíðsson
Inda Björk Gunnarsdóttir
Helga Eymundsdóttir
Jóhann Gunnar Sigmarsson
Regína Helgadóttir

1.Handbók samfélags- og mannréttindadeildar

Málsnúmer 2010060117Vakta málsnúmer

Farið yfir handbók samfélags- og mannréttindadeildar sem inniheldur upplýsingar um starfsemi deildarinnar ásamt öðrum mikilvægum gögnum fyrir nefndarfólk.

2.Fundaáætlun 2010

Málsnúmer 2010060118Vakta málsnúmer

Ræddar tillögur að föstum fundartímum.

Næsti fundur samfélags- og mannréttindaráðs verður haldinn miðvikudaginn 18. ágúst kl. 16.30. Á þeim fundi verður tekin ákvörðun um fundartíma veturinn 2010-2011.

3.Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga 2010

Málsnúmer 2009090061Vakta málsnúmer

Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga verður haldinn á Akureyri í september 2010. Farið var yfir drög að dagskrá og rætt um tilhögun fundarins.

4.Vinnuskóli - hugmyndir um tilfærslu innan kerfis

Málsnúmer 2009010148Vakta málsnúmer

Kynntar voru hugmyndir sem voru til umræðu sl. vetur um flutning vinnuskólans frá framkvæmdadeild til samfélags- og mannréttindadeildar.

Fundi slitið - kl. 15:00.