Samfélags- og mannréttindaráð

82. fundur 02. mars 2011 kl. 16:45 - 18:35 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Guðlaug Kristinsdóttir
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Forvarnastefna - endurskoðun 2010

Málsnúmer 2010110033Vakta málsnúmer

Áframhaldandi umræður um stefnumótun í forvarnamálum. Drög að endurskoðaðri forvarnastefnu eru nú í umsagnarferli hjá nefndum Akureyrarbæjar.
Gréta Kristjánsdóttir umsjónarmaður forvarna sat fundinn undir þessum lið.

Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti til fundar kl. 17:12.

2.Hvað ef - leiksýning

Málsnúmer 2011020094Vakta málsnúmer

Dagana 22. og 23. febrúar sl. stóð unglingum á Akureyri og foreldrum þeirra til boða að sækja leiksýninguna Hvað ef. Sýningin fjallar um viðkvæm mál eins og vímuefni, áfengi, kynferðisofbeldi, ölvunarakstur, einelti og foreldravandamál. Alls sóttu um 1200 unglingar og um 300 foreldrar sýninguna.

Samfélags- og mannréttindaráð þakkar aðstandendum sýningarinnar fyrir frábært framlag til forvarnamála.

3.Samfélags- og mannréttindaráð - rekstraryfirlit 2010

Málsnúmer 2009100036Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit þeirra málaflokka sem heyra undir samfélags- og mannréttindadeild. Reksturinn var í flestum tilvikum jákvæður sem skýrist að mestu af meiri tekjum vegna námskeiðahalds og útleigu sem og verkefna sem styrkir fengust til.

Samfélags- og mannréttindaráð telur ánægjulegt að fjárhagsáætlun hafi reynst þetta nákvæm og þakkar starfsfólki fyrir sýnda ráðdeild.

4.Starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs 2011

Málsnúmer 2010090136Vakta málsnúmer

Áframhaldandi vinna við starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs fyrir árið 2011.

Fundi slitið - kl. 18:35.