Samfélags- og mannréttindaráð

88. fundur 01. júní 2011 kl. 16:45 - 18:25 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Guðlaug Kristinsdóttir
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs 2011-2014

Málsnúmer 2010090136Vakta málsnúmer

Umræður um starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs sem verður tekin til umfjöllunar á fundi bæjarstjórnar 7. júní nk. Formaður samfélags- og mannréttindaráðs mun þar gera grein fyrir starfsáætluninni.

2.Samfélags- og mannréttindadeild - rekstraryfirlit 2011

Málsnúmer 2010090135Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit janúar til apríl 2011 fyrir þá málaflokka sem heyra undir samfélags- og mannréttindadeild.

3.Fjölskyldustefna Akureyrarbæjar - endurskoðun

Málsnúmer 2008080068Vakta málsnúmer

Umræður um endurskoðun á Fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar. Fjölskyldustefnan var fyrst samþykkt í bæjarstjórn vorið 2002. Endurskoðuð útgáfa var samþykkt haustið 2005.

Samfélags- og mannréttindaráð leggur til við bæjarstjórn að skipaður verði vinnuhópur sem verði falið að meta hvort markmiðum Fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar er nú þegar mætt í öðrum stefnum bæjarins eða hvort ástæða sé til að endurskoða stefnuna.

4.Ábyrgð foreldra

Málsnúmer 2009050034Vakta málsnúmer

Umræður um ábyrgð foreldra á ólögráða ungmennum í ljósi þess að í hönd fer sá árstími þegar haldnar eru ýmsar bæjarhátíðir og sumarskemmtanir um allt land.

Samfélags- og mannréttindaráð hvetur foreldra til að axla ábyrgð á uppeldishlutverki sínu og gefa ekki ólögráða ungmennum leyfi til að sækja skemmtanir og viðburði, jafnvel í önnur sveitarfélög, án þess að ráðstafanir hafi verið gerðar til að tryggja öryggi þeirra.

5.Jafnréttisáætlanir stofnana

Málsnúmer 2008090024Vakta málsnúmer

Í jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar er kveðið á um að allir vinnustaðir þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn skuli gera jafnréttisáætlanir í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Jafnréttisáætlun búsetudeildar verður lögð fram til kynningar.

Samfélags- og mannréttindaráð fagnar jafnréttisáætluninni og hvetur þær stofnanir sem ekki hafa lokið vinnu við gerð jafnréttisáætlana að gera það sem fyrst.

Fundi slitið - kl. 18:25.