Kjarnagata 25-31 - öryggismál

Málsnúmer BN060291

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 120. fundur - 24.08.2011

Skipulagsstjóri leggur til við skipulagsnefnd að gerð verði krafa, á eiganda lóðarinnar Kjarnagötu 25-31. Krafan snýst um að taka upp járnteina sem standa upp úr fyllingu við undirstöður og hreinsa allt rusl og laust byggingarefni burt af lóðinni vegna hættu sem af því stafar. Lóðin er opin og er hættuleg börnum.

Skipulagsnefnd samþykkir að gefa lóðarhafa Kjarnagötu 25-31 frest til 9. september 2011 til að hreinsa lóðina af öllu lausu byggingarefni og rusli ásamt að taka upp alla járnteina sem standa upp úr fyllingu grunnsins og ganga þannig frá járnum í undirstöðum að ekki stafi hætta af.

Lóðarhafa er gefinn 10 daga frestur til að andmæla ákvörðun þessari. Ef ekki berast andmæli innan gefins frests eða verkið ekki unnið fyrir 9. september 2011 verður verkið unnið á kostnað lóðarhafa og innheimt skv. 56. gr. laga um mannvirki.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 428. fundur - 16.01.2013

Erindi dagsett 11. janúar 2013 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. SS Byggis ehf., kt 620687-2519, sækir um breytingu innanhúss á Kjarnagötu 25-31. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 434. fundur - 27.02.2013

Erindi dagsett 10. janúar 2013 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir húsinu nr. 25-27 við Kjarnagötu.
Einnig er sótt um undanþágu í samræmi við grein 17.1.2., lið 1. í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður h.
2. Gr. 6.4.3. Dyr innanhúss, svala- og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangar og anddyri.
4. Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Innkomnar teikningar 21. og 26. febrúar 2013.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 435. fundur - 06.03.2013

Erindi dagsett 10. janúar 2013 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir húsinu nr. 25 við Kjarnagötu.
Einnig er sótt um undanþágu í samræmi við grein 17.1.2., lið 1. í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður h.
2. Gr. 6.4.3. Dyr innanhúss, svala- og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangar og anddyri.
4. Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Innkomnar teikningar 21. og 26. febrúar og 4. mars 2013.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi ef byggingarleyfi hefur ekki verið gefið út fyrir 15. apríl nk.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 510. fundur - 24.09.2014

Erindi dagasett 18. september 2014 þar sem Haraldur Árnason f.h. SS byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Kjarnagötu 25. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 512. fundur - 09.10.2014

Erindi dagasett 18. september 2014 þar sem Haraldur Árnason f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Kjarnagötu 25. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason. Innkomnar teikningar 1. október 2014.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.