Stéttarfélag lögfræðinga - kjarasamningur 2024-2028

Málsnúmer 2024121324

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3876. fundur - 16.01.2025

Kynning á nýgerðum kjarasamningi Stéttarfélags lögfræðinga við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að gerður verði viðauki vegna málsins og felur sviðsstjórum mannauðssviðs og fjársýslusviðs að vinna viðaukann og leggja fyrir bæjarráð.