Frumvarp til laga um breytingu á kosningalögum, nr. 1122021 lækkun kosningaaldurs, 497. mál

Málsnúmer 2023051050

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3810. fundur - 25.05.2023

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 17. maí 2023 frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á kosningalögum, nr. 112/2021 (lækkun kosningaaldurs), 497. mál 2023.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 26. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/pdf/153/s/0599.pdf