Baldursnes 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023050367

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 916. fundur - 19.05.2023

Erindi dagsett 5. maí 2023 þar sem Almar Eggertsson fyrir hönd Baldursnes 5 byggingarvers ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði á lóð nr. 5 við Baldursnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Almar Eggertsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 918. fundur - 01.06.2023

Erindi dagsett 5. maí 2023 þar sem Almar Eggertsson fyrir hönd Baldursnes 5 byggingarvers ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði á lóð nr. 5 við Baldursnes. Innkomnar nýjar teikningar 26. maí 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.