Hlíðarfjallsvegur - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir jarðvegsmön

Málsnúmer 2023030531

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 398. fundur - 15.03.2023

Erindi dagsett 10. mars 2023 þar sem Jón Birgir Gunnlaugsson f.h. umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um framkvæmdaleyfi fyrir gerð jarðvegsmana við Hlíðarfjallsveg.
Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.