Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir, sameining Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs, þjónustustöðvar, 782. mál

Málsnúmer 2023030412

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3802. fundur - 16.03.2023

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 8. mars 2023 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (sameining Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs, þjónustustöðvar), 782. mál 2023.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 17. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/pdf/153/s/1194.pdf