Skautafélag Akureyrar - styrkbeiðni vegna IceCup2023 krullumóts á Akureyri.

Málsnúmer 2023020590

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og lýðheilsuráð - 27. fundur - 13.03.2023

Lagt fram erindi dagsett 10. febrúar 2023 frá Árna Grétari Árnasyni fyrir hönd krulludeildar Skautafélags Akureyrar þar sem er óskað eftir 150.000 króna styrk vegna IceCup alþjóðslegs krullumóts í Skautahöll Akureyrar í maí 2023.


Áheyrnarfulltrúi: Helga Björg Ingvadóttir framkvæmdastjóri ÍBA.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar fyrir erindið en getur ekki orðið við því.