Hlíðarfjall - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2023010358

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 395. fundur - 25.01.2023

Erindi dagsett 6. janúar 2023 þar sem Ómar Ívarsson f.h. umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um breytingu á deiliskipulagi í Hlíðarfjalli. Fyrirhugað er að byggja nýtt áhaldahús. Meðfylgjandi er uppdráttur.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er talin þörf á grenndarkynningu sbr. 44. gr. laganna. Er skipulagsfulltrúa falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar fullnægjandi skipulagsgögn liggja fyrir.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.