Viðurkenningar Húsverndarsjóðs - breytingar á verklagsreglum

Málsnúmer 2022100553

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3784. fundur - 20.10.2022

Lögð fram tillaga um breytingar á verklagsreglum um veitingu viðurkenninga fyrir húsvernd og byggingalistaverðlaun Akureyrar. Tillögurnar taka mið af breytingum á stjórnkerfi bæjarins.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingum á verklagsreglum um veitingu viðurkenninga fyrir húsvernd og byggingalistaverðlaun Akureyrar með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.