Grímsey - áskorun frá útgerðarmönnum varðandi byggðakvóta

Málsnúmer 2022100449

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3784. fundur - 20.10.2022

Erindi dagsett 12. október 2022 frá Vilhjálmi Ólafssyni f.h. útgerðarmanna í Grímsey þar sem þess er farið á leit við bæjarráð að sækjast eftir því að aukið verði við almennan byggðakvóta í Grímsey.
Bæjarráð felur bæjarstjóra Ásthildi Sturludóttur að fylgja eftir áskorun útgerðarmanna vegna byggðakvóta.