Reglur velferðarsviðs um notendasamninga

Málsnúmer 2022090995

Vakta málsnúmer

Velferðarráð - 1357. fundur - 11.10.2022

Lögð fram drög að nýjum reglum um notendasamninga.

Halldóra Kristín Hauksdóttir lögfræðingur og Hlynur Már Erlingsson forstöðumaður stuðningsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð vísar drögum að reglum um notendasamninga til öldungaráðs, samráðshóps um málefni fatlaðs fólks auk Hörgársveitar, Grýtubakkahrepps, Eyjafjaðrarsveitar og Svalbarðsstrandarhrepps til umsagnar.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks - 6. fundur - 18.10.2022

Reglur um notendasamninga voru sendar samráðshópnum og óskað eftir umsögn.
Samráðshópurinn samþykkir fyrir sitt leyti framlögð drög að reglum um notendasamninga.

Öldungaráð - 23. fundur - 09.11.2022

Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs kynnti drög að reglum um notendasamninga.
Öldungaráð vill lýsa yfir ánægju með að reglunum hafi verið vísað til ráðsins til umsagnar. Ráðið þakkar Karólínu fyrir góða kynningu og líst vel á reglurnar.

Velferðarráð - 1360. fundur - 23.11.2022

Lagðar fram til afgreiðslu reglur um notendasamninga.

Halldóra Hauksdóttir lögfræðingur, Bergdís Ösp Bjarkadóttir, Elfa Björk Gylfadóttir og Hlynur Már Erlingsson forstöðumenn sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir reglur um notendasamninga fyrir sitt leyti og vísar þeim áfram til samþykktar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn - 3520. fundur - 06.12.2022

Liður 5 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 23. nóvember 2022:

Lagðar fram til afgreiðslu reglur um notendasamninga.

Halldóra Hauksdóttir lögfræðingur, Bergdís Ösp Bjarkadóttir, Elfa Björk Gylfadóttir og Hlynur Már Erlingsson forstöðumenn sátu fundinn undir þessum lið.

Velferðarráð samþykkir reglur um notendasamninga fyrir sitt leyti og vísar þeim áfram til samþykktar í bæjarstjórn.

Lára Halldóra Eiríksdóttir kynnti.
Bæjarstjórn samþykkir endurskoðaðar reglur velferðarsviðs um notendasamninga með 11 samhljóða atkvæðum.