Búnaðarkaup í sal í Rósenborg

Málsnúmer 2022080964

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og lýðheilsuráð - 30. fundur - 24.04.2023

Lagt fram minnisblað forstöðumanns forvarna- og frístundamála og forstöðumanns skrifstofu en óskað er eftir samþykki fræðslu- og lýðheilsuráðs til að sækja um í búnaðarsjóð UMSA fyrir 4. hæðina í Rósenborg.


Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð sækir um 2,4 m.kr. í búnaðarsjóð umhverfis- og mannvirkjasviðs og samþykkir jafnframt að bera lausafjárleigu vegna kaupanna.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 139. fundur - 16.05.2023

Fræðslu- og lýðheilsuráð tók fyrir erindi frá Ölfu Aradóttar forstöðumanni frístunda- og forvarnarmála á 30. fundi sínum þann 24. apríl 2023. Ráðið bókaði:


Lagt fram minnisblað forstöðumanns forvarna- og frístundamála og forstöðumanns skrifstofu en óskað er eftir samþykki fræðslu- og lýðheilsuráðs til að sækja um í búnaðarsjóð UMSA fyrir 3. og 4. hæðina í Rósenborg.

Fræðslu- og lýðheilsuráð sækir um 2,4 m.kr. í búnaðarsjóð umhverfis- og mannvirkjasviðs og samþykkir jafnframt að bera lausafjárleigu vegna kaupanna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fjármagna kaup á húsgögnunum að upphæð kr. 2,4 milljónir af liðnum stofnbúnaður fyrir aðalsjóð.