Goðanes 1 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2022061657

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 384. fundur - 06.07.2022

Erindi dagsett 30. júní 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson f.h. p3 fasteigna sækir um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 1 við Goðanes. Óskað er eftir stækkun á byggingarreit um 3,65 m til suðurs og að kvöð um lagnir verði hliðrað um 3 m til suðurs. Fyrir liggur samþykki Norðurorku fyrir hliðrun lagna.

Meðfylgjandi er skipulagsuppdráttur.
Halla Björk Reynisdóttir L-lista bar upp vanhæfi við afgreiðslu málsins og var það samþykkt. Vék hún af fundi undir umræðum og við afgreiðslu máls.


Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er talin þörf á grenndarkynningu sbr. 44. gr. laganna. Er skipulagsfulltrúa falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar fullnægjandi skipulagsgögn liggja fyrir.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.