Strandgata 3 - Sykurverk - umsókn um nýtingu gangstéttar

Málsnúmer 2022061155

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 384. fundur - 06.07.2022

Erindi dagsett 22. júní 2022 þar sem Sykurverk ehf. sækir um leyfi til að hafa stóla og borð utandyra vestan við veitingastað í húsi nr. 3 við Strandgötu.

Skipulagsráð samþykkir erindið með þeim skilmálum að farið verði eftir ákvæðum sem sett eru fram í Samþykkt Akureyrarbæjar um verklagsreglur vegna nýtingar gangstétta- og göturýmis í göngugötu og Ráðhústorgi.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.