Kjarnaskógur - Hamrar - umsókn um skipulag

Málsnúmer 2022061080

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 384. fundur - 06.07.2022

Erindi dagsett 21. júní 2022 þar sem Jón Birgir Gunnlaugsson f.h. Akureyrarbæjar sækir um breytingu á deiliskipulagi Kjarnaskógar og Hamra. Um er að ræða minniháttar breytingar sem felast í staðsetningum spennistöðva ásamt breytingum á flötum norðan Hamra og breyttri aðkomu að Kjarnakoti í Kjarnaskógi. Meðfylgjandi er deiliskipulagsuppdráttur.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er talin þörf á grenndarkynningu sbr. 44. gr. laganna. Er skipulagsfulltrúa falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar fullnægjandi skipulagsgögn liggja fyrir.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.