Glerárgil - Zip lína samningur við rekstraraðila

Málsnúmer 2022060950

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 121. fundur - 21.06.2022

Lögð fram drög að samningi við Zipline Akureyri ehf. um rekstur á fimm fluglínum sem þvera Glerárgil á 500 metra kafla.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samning við Zipline Akureyri ehf. sem gildir til 2ja ára með möguleika á framlengingu um 2 ár í viðbót með fyrirvara um útfærslu á atriðum sem rædd voru á fundinum.


Sindri Kristjánsson S-lista og Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista óska bókað:

Á meðan fagna ber því framtaki sem aðstandendur Zipline á Akureyri hafa staðið fyrir að bæta í flóru afþreyingar fyrir bæjarbúa og ferðamenn skýtur það ansi skökku við að búið sé að afhenda hluta húsnæði leikskólans Pálmholts til rekstraraðilanna áður en gengið hefur verið frá þeim samningi sem kynntur er hér í drögum. Við þetta er rétt að bæta að gríðarlega mikilvægt er að sambúð fyrirtækisins og leikskólans takist sem best og að Akureyrarbær hiki ekki eitt andartak að grípa til aðgerða ef þurfa þykir takist þetta samstarf ekki vel. Ekki má gleyma að þarna er verið að bjóða einkafyrirtæki að reka sitt fyrirtæki á skólalóð þar sumir af okkar yngstu íbúum eyða mestum af sínum tíma. Aldrei má gefa nokkurn afslátt af öryggi þeirra og vellíðan á skólatíma.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 137. fundur - 18.04.2023

Lögð fram drög að viðauka við samning við Zipline Akureyri ehf. varðandi nýtingu á framlengingarákvæði samnings um leigu á hluta húsnæðis við Þingvallastræti 50.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengja samningsákvæðið og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að skrifa undir viðauka þess efnis.