Bæjarstjórnarfundir í júlí og ágúst 2022

Málsnúmer 2022060868

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 3513. fundur - 21.06.2022

Lögð fram eftirfarandi tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar Akureyrarbæjar 2022:


Í samræmi við 4. mgr. 8. gr. og 5. mgr. 33. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar samþykkir bæjarstjórn að frá og með 1. júlí til og með 31. ágúst 2022 verði sumarleyfi bæjarstjórnar. Ekki verða haldnir fundir í bæjarstjórn á framangreindu tímabili nema þörf krefji eða þriðjungur bæjarfulltrúa krefjist þess. Jafnframt er bæjarráði á þessum tíma heimiluð fullnaðarafgreiðsla þeirra mála sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu og lög mæla ekki gegn.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að hlé verði gert á fundum bæjarstjórnar Akureyrarbæjar í júlí og ágúst 2022 í samræmi við 4. mgr. 8. gr. og 5. mgr. 33. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar. Ekki verða haldnir fundir í bæjarstjórn á framangreindu tímabili nema þörf krefji eða þriðjungur bæjarfulltrúa krefjist þess. Jafnframt er bæjarráði á þessum tíma heimiluð fullnaðarafgreiðsla þeirra mála sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu og lög mæla ekki gegn.