Brekkan, Eyrin, Frostagata, Hafnarstræti, Hamragerði, Lyngholt, Langamýri, Miðhúsabraut - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara

Málsnúmer 2022060271

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 383. fundur - 15.06.2022

Erindi dagsett 3. júní 2022 þar sem Tengir hf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara á Oddeyri, Brekkunni, í Frostagötu, Hamragerði, Hafnarstræti, Lyngholti, Löngumýri og Miðhúsabraut. Meðfylgjandi eru skýringarmyndir.

Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

Er samþykkið með fyrirvara um jákvæða umsögn umhverfis- og mannvirkjasviðs og Minjastofnunar Íslands.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.