Sleipnir MC - styrkbeiðni vegna Umhyggjuferðar félagsins 11. til 14. ágúst 2022

Málsnúmer 2022051158

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3771. fundur - 25.05.2022

Erindi dagsett 17. maí 2022 frá Ísak Þór Ragnarssyni fyrir hönd mótorhjólaklúbbsins Sleipnis MC þar sem óskað er eftir samstarfi og stuðningi frá Akureyrarbæ vegna góðgerðarferðar til styrktar Umhyggju, félags langveikra barna og aðstandenda þeirra. Ferðin mun bera nafnið Umhyggjuferð Sleipnis og stendur yfir tímabilið 11. til 14. ágúst nk.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.