Tryggvabraut - hringtorg við Hvannavelli

Málsnúmer 2021120740

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 111. fundur - 17.12.2021

Lagt fram minnisblað dagsett 15. desember 2021 varðandi útboð á framkvæmdum við Tryggvabraut, Hvannavelli og hringtorg á gatnamótunum.

Sara Ómarsdóttir verkefnastjóri tækni og hönnunar og Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sátu fundinn undir þessum lið.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 112. fundur - 21.01.2022

Lagt fram minnisblað dagsett 20. janúar 2022 varðandi opnun tilboða í framkvæmdir við Tryggvabraut, Hvannavelli og hringtorg á gatnamótunum. Eitt tilboð barst.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Finn ehf., en tilboðið hljóðaði upp á kr. 175.922.000.