Engimýri 10 - fyrirspurn til skipulagssviðs vegna breytinga

Málsnúmer 2021110338

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 370. fundur - 24.11.2021

Erindi Valgerðar Guðmundsdóttur dagsett 5. nóvember 2021 þar sem lögð er fram fyrirspurn varðandi breytingar á húsi nr. 10 við Engimýri. Fyrirhugað er að grafa út hluta kjallara og útbúa herbergi/íbúð ásamt því að bæta við útidyrahurð á austurhlið. Meðfylgjandi eru skýringarmyndir.

Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Málinu er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.