Klettaborg 3 og 4 - fyrirspurn til skipulagssviðs vegna bílgeymslu

Málsnúmer 2021051352

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 360. fundur - 09.06.2021

Erindi dagsett 27. maí 2021 þar sem Borghildur Guðmundsdóttir leggur inn fyrirspurn varðandi byggingu bílgeymslu við hús nr. 3 og 4 við Klettaborg. Bílgeymslan yrði tvöföld þar sem annað bilið tilheyrði húsi nr. 3 og hitt húsi nr. 4. Fyrirspurnin er í samráði við eigendur Klettaborgar 4.
Skipulagsráð samþykkir ekki að afmörkuð verði lóð fyrir tvöfaldan bílskúr í enda götunnar. Bílskúr fyrir lóð 3 þyrfti að vera innan núverandi lóðar og það sama á við um lóð 4.