Matthíasarhagi 8,10,12 - fyrirspurn til skipulagssviðs vegna deiliskipulags

Málsnúmer 2021051308

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 360. fundur - 09.06.2021

Erindi dagsett 26. maí 2021 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Kistu Byggingarfélags ehf. leggur inn fyrirspurn varðandi lóðir 8,10 og 12 við Matthíasarhaga. Óskað er eftir að fá að breyta lóðunum í lóð fyrir fimm íbúða raðhús með húsnúmerunum 8,10,12,14 og 16. Meðfylgjandi er greinargerð og tillöguuppdráttur.
Skipulagsráð hafnar því að breyta deiliskipulagi svæðisins í samræmi við umsókn.