Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald (EES-reglur, hringrásarhagkerfi), 708. mál

Málsnúmer 2021040821

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3724. fundur - 29.04.2021

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 15. apríl 2021 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald (EES-reglur, hringrásarhagkerfi), 708. mál 2021.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 29. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/1187.html