Brekkugata 29 - Brekkugata ehf. - beiðni um umsögn - rekstrarleyfi

Málsnúmer 2021040745

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 357. fundur - 28.04.2021

Lögð fram umsókn um rekstrarleyfi fyrir leigu íbúða í Brekkugötu 29. Er áætlaður fjöldi gesta 7-9.
Að mati skipulagsráðs samræmist það ekki gildandi aðalskipulagi að vera með rekstrarleyfisskylda gististarfsemi í húsinu þar sem engin bílastæði eru á lóðinni. Samkvæmt ákvæðum aðalskipulagsins þyrftu að vera a.m.k. 2 bílastæði til staðar innan lóðar.