Menningarsjóður 2021

Málsnúmer 2021031614

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 316. fundur - 25.03.2021

35 umsóknir bárust um styrk í Menningarsjóð samtals að upphæð kr. 12.460.630.

Átta umsóknir bárust um ósk um samning við Menningarsjóð samtals að upphæð kr. 6.050.000.

Tvær umsóknir bárust um sumarstyrk ungra listamanna samtals að upphæð kr. 1.200.000.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.

Stjórn Akureyrarstofu - 317. fundur - 15.04.2021

Tillögur að byggingarlistaverðlaunum, húsverndarviðurkenningu, starfslaunum listamanna og heiðursviðurkenningum lagðar fram.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framkomnar tillögur. Afhending verðlaunanna verður á Vorkomu Akureyrarstofu á sumardaginn fyrsta þann 22. apríl nk.