Útboð - Rekstur kaffihúss í Listasafninu á Akureyri

Málsnúmer 2021031097

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 316. fundur - 25.03.2021

Óskað er eftir því að stjórn Akureyrarstofu tilnefni einn aðila í dómnefnd vegna útboðs á rekstri kaffihúss í Listasafninu á Akureyri.

Hlynur Hallsson safnssjóri sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að tilnefna Sigfús Karlsson í dómnefnd.

Stjórn Akureyrarstofu - 317. fundur - 15.04.2021

Greinargerð dómnefndar lögð fram ásamt tillögu að vali.

Niðurstaða dómnefndar er að leggja til við stjórn Akureyrarstofu að gengið verði til samninga við Eyþór Gylfason og Þórunni Eddu Magnúsdóttur á grundvelli innsendrar umsóknar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillögu dómnefndar.