Karlakór Akureyrar Geysir - umsókn um samning við Menningarsjóð 2021

Málsnúmer 2021020658

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 316. fundur - 25.03.2021

Umsókn dagsett 13. febrúar 2021 frá Karlakór Akureyrar Geysi sem sækir um samstarfssamning við Menningarsjóð til 3ja ára að upphæð 600.000 kr. hvert ár.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð 300.000 kr., ár hvert, til næstu 3ja ára.