Hljómsveitin Ímyndun - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2021

Málsnúmer 2021020566

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 316. fundur - 25.03.2021

Umsókn dagsett 11. febrúar 2021 frá Eyþóri Alexander Hallssyni, fyrir hönd hljómsveitarinnar Ímyndunar, sem sækir um styrk úr Menningarsjóði að upphæð 400.000 kr. fyrir verkefnið; Upptaka á laginu "Kul í Hjarta".

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð 200.000 kr.