Tónlistarfélag Akureyrar - umsókn um samning við Menningarsjóð 2021

Málsnúmer 2021020519

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 316. fundur - 25.03.2021

Umsókn dagsett 10. febrúar 2021 frá Ásdísi Arnardóttur, fyrir hönd Tónlistarfélags Akureyrar, sem sækir um samstarfssamning við Menningarsjóð til 3ja ára að upphæð 800.000 kr. hvert ár.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð 650.000 kr., ár hvert, til næstu 3ja ára.