Græni hatturinn - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2020

Málsnúmer 2020100697

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 308. fundur - 05.11.2020

Umsókn dagsett 23. október 2020 frá Hauki Tryggvasyni fyrir hönd Græna hattsins þar sem sótt er um styrk úr Menningarsjóði að upphæð kr. 800.000 vegna verkefnisins Í túninu heima.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 650.000 til verkefnisins.