Kvistagerði 2 - fyrirspurn til skipulagssviðs vegna bílgeymslu

Málsnúmer 2020100683

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 347. fundur - 11.11.2020

Erindi dagsett 24. október 2020 þar sem Magnús Hallur Sævarsson leggur inn fyrirspurn vegna viðbyggingar við bílgeymslu á lóð nr. 2 við Kvistagerði.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við að byggð verði viðbygging í samræmi við umsókn með fyrirvara um samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar. Ekki er talið að um aðra hagsmunaaðila sé að ræða og því ekki þörf á grenndarkynningu. Byggingarfulltrúi afgreiðir umsókn um byggingarleyfi þegar það berst.