Ráðhústorg - umsókn um leyfi fyrir ljósmyndasýningu

Málsnúmer 2020100269

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 345. fundur - 14.10.2020

Erindi dagsett 8. október 2020 þar sem ljósmyndaklúbburinn ÁLFkonur sækir um leyfi til að halda ljósmyndasýningu á Ráðhústorgi. Sýningin er í formi stöpla sem yrðu færðir sem fyrst frá núverandi stað við Drottningarbraut og á Ráðhústorg og fengju að standa fram til aðventuhátíðar sem er 20.- 23. nóvember nk.
Skipulagsráð samþykkir umbeðna sýningu til 15. nóvember 2020.