Mýrarvegur 114 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020100083

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 784. fundur - 02.10.2020

Erindi dagsett 2. október 2020 þar sem Arnar Freyr Jónsson spyrst fyrir um hvort leyfi fengist til að byggja 16 m² viðbyggingu við kjallara hússins nr. 114 við Mýrarveg. Viðbyggingin er hugsuð sem köld útigeymsla og þakið á viðbyggingunni sem gólf á verönd. Þetta er á austurhlið hússins. Meðfylgjandi er mynd er sýnir fyrirhugaða viðbyggingu.
Byggingarfulltrúi óskar eftir umsögn skipulagsráðs um erindið.

Skipulagsráð - 345. fundur - 14.10.2020

Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindi dagsett 2. október 2020 þar sem Arnar Freyr Jónsson sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 114 við Mýrarveg. Fyrirhuguð viðbygging er við kjallara og er 16 m² og hugsuð sem köld útigeymsla og þakið sem gólf á verönd.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við að byggð verði viðbygging í samræmi við umsókn og samþykkir að grenndarkynna umsóknina skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Ef engar athugasemdir berast á kynningartíma er umsókn um byggingarleyfi vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 822. fundur - 15.07.2021

Erindi dagsett 2. október 2020 þar sem Arnar Freyr Jónsson spyrst fyrir um hvort leyfi fengist til að byggja 16 m² viðbyggingu við kjallara hússins nr. 114 við Mýrarveg. Viðbyggingin er hugsuð sem köld útigeymsla og þakið á viðbyggingunni sem gólf á verönd. Þetta er á austurhlið hússins. Meðfylgjandi er mynd er sýnir fyrirhugaða viðbyggingu. Erindið fór í grenndarkynningu sem lauk án athugasemda 25. júní 2021.
Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið og heimilar umsækjanda að leggja fram aðaluppdrætti og tilskilin gögn.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 836. fundur - 21.10.2021

Erindi dagsett 2. október 2020 þar sem Arnar Freyr Jónsson sækir um leyfi til að byggja 16 m² viðbyggingu við kjallara hússins nr. 114 við Mýrarveg. Meðfylgjandi er teikning eftir Anton Örn Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 6. október 2021.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 838. fundur - 03.11.2021

Erindi dagsett 2. október 2020 þar sem Arnar Freyr Jónsson sækir um leyfi til að byggja 16 m² viðbyggingu við kjallara hússins nr. 114 við Mýrarveg. Meðfylgjandi er teikning eftir Anton Örn Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 27. október 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.