Beiðni um samstarf vegna sölu á lyftukortum í Hlíðarfjalli

Málsnúmer 2020090436

Vakta málsnúmer

Stjórn Hlíðarfjalls - 6. fundur - 16.09.2020

Erindi dagsett 13. september 2020 frá Sigrúnu Sigmundsdóttur hótelsstjóra Icelandair Hotels á Akureyri þar sem óskað er eftir áframhaldandi samstarfi við Hlíðarfjall.
Afgreiðslu frestað.

Stjórn Hlíðarfjalls - 7. fundur - 05.10.2020

Erindi dagsett 13. september 2020 frá Sigrúnu Huldu Sigmundsdóttur hótelstjóra Icelandair Hotels á Akureyri þar sem óskað er eftir samstarfi um sölu á lyftukortum í Hlíðarfjall.
Stjórn Hlíðarfjalls getur ekki orðið við erindinu en felur formanni og sviðsstjóra samfélagssviðs að ræða við bréfritara um samstarf á breiðari grunni.

Stjórn Hlíðarfjalls - 9. fundur - 10.12.2020

Samstarfssamningur vegna sölu á lyftukortum lagður fram til kynningar.