Viðtalstímar bæjarfulltrúa

Málsnúmer 2020080953

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3739. fundur - 16.09.2021

Rætt um viðtalstíma bæjarfulltrúa og framtíð þeirra.
Í ljósi þess að íbúum stendur nú til boða að koma ábendingum og fyrirspurnum á framfæri í gegnum hnapp á heimasíðu og þeir geta haft samband við bæjarfulltrúa með ýmsum hætti telur bæjarráð ástæðu til að hætta að bjóða upp á viðtalstíma að sinni. Samhliða þessari breytingu verður lögð áhersla á að fylgja eftir góðri svörun við ábendingum sem berast.