Spes streetfood ehf - fyrirspurn um kofa í miðbænum fyrir veitingasölu

Málsnúmer 2020070206

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 341. fundur - 12.08.2020

Erindi dagsett þann 6. júlí 2020 þar sem Ingi Þór Arngrímsson, fyrir hönd Spes - streetfood ehf sækir um leyfi til að setja tímabundið, til tveggja ára, upp lítið 10-16 fm hús í miðbænum til þess að selja veitingar.
Skipulagsráð telur að ekki sé hægt að verða við erindinu þar sem öll fastleigustæði í miðbænum er upptekin eins og er.

Skipulagsráð leggur áherslu á að endurskoðun á samþykkt um götu- og torgsölu verði hraðað.