Ránargata 11 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2020060528

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 772. fundur - 30.06.2020

Erindi dagsett 15. júní 2020 þar sem Magdalena Ásgeirsdóttir sækir um leyfi til að bæta við bílastæði við Ránargötu 11, til suðurs.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæðið með 4 metra úrtaki úr kantsteini, með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.