Kringlumýri 11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020060137

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 771. fundur - 05.06.2020

Erindi dagsett 4. júní 2020 frá Valbirni Ægi Vilhjálmssyni þar sem hann fyrir hönd Einvarðs Jóhannssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og bílgeymslu við húsið Kringlumýri 11 samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Skipulagsráð - 338. fundur - 10.06.2020

Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindi dagsett 4. júní 2020 frá Valbirni Ægi Vilhjálmssyni þar sem hann fyrir hönd Einvarðs Jóhannssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og bílgeymslu við húsið Kringlumýri 11 samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Tryggvi Már Ingvarsson B-lista bar upp vanhæfi sitt í málinu og var það samþykkt.

Vék hann af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.

Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við tillöguna og samþykkir að grenndarkynna hana skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsráð - 340. fundur - 08.07.2020

Lögð fram að lokinni grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 123/2010 erindi um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og bílgeymslu við húsið Kringlumýri 11 samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.

Var umsóknin grenndarkynnt með bréfi dagsettu 19. júní 2020 með athugasemdafresti til 17. júlí. Liggur fyrir samþykki allra þeirra sem fengu grenndarkynninguna senda.

Tryggvi Már Ingvarsson B-lista bar upp vanhæfi sitt í málinu og var það samþykkt. Vék hann af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við byggingu viðbyggingar og bílgeymslu til samræmis við fyrirliggjandi gögn. Umsókn um byggingarleyfi vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 773. fundur - 10.07.2020

Erindi dagsett 4. júní 2020 frá Valbirni Ægi Vilhjálmssyni þar sem hann fyrir hönd Einvarðs Jóhannssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og bílgeymslu við húsið Kringlumýri 11 samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 774. fundur - 17.07.2020

Erindi dagsett 4. júní 2020 frá Valbirni Ægi Vilhjálmssyni þar sem hann fyrir hönd Einvarðs Jóhannssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og bílgeymslu við húsið Kringlumýri 11 samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson. Innkomnar nýjar teikningar 13. júlí 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.