Vegagerðin - samningur til stígauppbyggingar

Málsnúmer 2020060095

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 79. fundur - 05.06.2020

Drög að samningi við Vegagerðina lagður fyrir ráðið varðandi uppbyggingu á stígakerfi á Akureyri.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð fagnar framlagi Vegagerðarinnar til þessa verkefnis.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 105. fundur - 10.09.2021

Lögð fram drög að viðbótarsamningi milli Vegagerðarinnar og Akureyrarbæjar um framkvæmd og undirbúning framkvæmda við göngu- og hjólastíga meðfram umferðarþungum götum á Akureyri - viðbót við samning frá maí 2020.

Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samningsdrögin og vísar þeim til fjárhagsáætlunargerðar.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 121. fundur - 21.06.2022

Lagt fram minnisblað dagsett 16. júní 2022 varðandi stofnstíga milli sveitarfélaga um Akureyri í samstarfi við Vegagerðina.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar sat fundinn undir þessum lið.