Hlíð - endurbætur á leiguíbúðum

Málsnúmer 2020060076

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 80. fundur - 26.06.2020

Lagt fram minnisblað dagsett 25. júní 2020 varðandi endurbætur á tveimur íbúðum í raðhúsunum við Hlíð.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í endurbætur á íbúðunum og að framlag Akureyrarbæjar til framkvæmdanna að upphæð 12,2 milljónir króna verði tekið af liðnum Hlíð endurbætur á eldra húsnæði í framkvæmdaáætlun ársins 2020.